Fréttir
05.02.21
Spennandi tímar framundan - nýr starfsmaður - ný staðsetning
Nýr starfsmaður hefur verið ráðinn til starfa hjá Húnabókhaldi og bjóðum við Ingibjörgu Jónsdóttur velkomna til starfa.
Ingibjörg hefur lokið MACC gráðu í reikningsskil og endurskoðun frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka og góða reynslu í bókhaldi. Hún mun sjá um nýja skrifstofu félagsins á Hvammstanga. Til að byrja með mun hún vera með aðstöðu að Hafnarbraut 7, á meðan við finnum hentugt húsnæði og opnunartími verður eftir þörfum.
Aðalnúmer félagsins er sem hingað til 452-4321 og Ingibjörg hefur símanúmerið 863-4901.
Bjóðum nýja viðskiptavini velkomna og hlökkum til samstarfsins!
fh Húnabókhalds ehf
Rannveig Lena Gísladóttir