Vegna sumarfría þá þurfum við að breyta opnunartíma okkar tímabundið. Frá og með 8. júlí verður Ingunn María í sumarfríi og frá þeim tíma verður einungis opið á morgnana frá kl 9 -12. Gísli verður við vinnu og mun leysa öll þau mál sem þarf að leysa.
6. júlí þarf ég víst í smá lagfæringu og mun verða í veikindafríi í einhvern tíma. Verð þó alveg í símasambandi og fylgist með tölvupóstinum mínum og mun svara eftir bestu getu.
Við viljum einnig minna viðskiptavini okkar núna á að skilafrestur á vsk vegna maí/júní er 5. ágúst nk. Vegna aðstæðna þá væri gott að fá gögn mjög timanlega. Einnig er skilafrestur bænda á vsk vegna jan/júní 1. sept nk. Vegna fjölda bænda sem við þjónustum þá væri mjög gott að fá þeirra gögn inn í byrjun ágúst, það er óþægilegt fyrir alla að fá marga alveg á síðustu stundu.
Ef koma þarf gögnum til okkar utan opnunartíma þá er hægt að hafa samband við mig í síma ( 893-0816) eða koma á Húnabraut 11 (efri hæð).
Vonandi kemur þetta viðskiptavinum okkar ekki illa. Við munum áfram passa uppá að öllu sé skilað á réttum tíma og minna viðskiptavini áfram á skilafresti á gögnum.
með sumarkveðjum
Rannveig Lena, Gísli og Ingunn María