Fréttir
19.08.13
Ábending vegna vaxtabóta
Til upplýsingar fyrir viðskiptavini okkar vegna vaxtabóta:
Ríkisskattstjóri hefur að gefnu tilefni bent á að bráðabirgðaákvæði um hærri vaxtabætur féll úr gildi um síðustu áramót.
Af því leiðir að samkvæmt gildandi lögum verður hámark vaxtabóta, sem koma til útborgunar 2014, um helmingi lægra en á þessu ári.
Þeir sem eru í fyrirframgreiðslukerfi vaxtabóta fá talsvert lægri ársfjórðungsgreiðslu 1. ágúst en þeir hafa fengið undanfarin ár, enda verða þá greiddar bætur vegna vaxtagjalda á fyrsta ársfjórðungi 2014, eftir að áðurnefnt bráðabirgðaákvæði féll úr gildi.